:: Svan að rugla :: | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| :: Rugl og vitleysisgangur alltaf hreint! :: Sendu mér póst :: | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
:: föstudagur, október 03, 2003 :: "Nýja" síðan hennar Sibbu Stelpan mín hefur ákveðið að reveal-a livejournal síðuna sína fyrir augum almennings. Svan ADSL mál Fengum hringingu frá NTT, sem er the japanese equalent of Landsíminn, þar sem við áttum að confirma hversu lengi við værum "nýbúar" (ég held að það standi á þessu blessaða blaði sem ég er búinn að ganga um með síðan ég kom hingað). Þeir held ég tengdu símalínuna í dag, þá er það bara að fá viðgerðarmanninn til að installa þessu fyrir okkur og þá er held ég allt set. But knowing this is the buerocratic Japan that I'm talking about here, it won't be that simple. Svan:: fimmtudagur, október 02, 2003 :: Undarlegur fréttatími Sat í gærnótt að horfa á fréttirnar með Ann. Það kom einhver voðalega alvarleg frétt um einhvern sjúkdóm sem var að herja á börn einhverstaðar og var fréttapistillinn með enskum texta og var á ensku. Svo þegar pistillinn var búinn þá varð skjárinn svartur og svo kom voðalega mjúk karlmannsrödd og sagði "And now with japanese subtitles". Ann sagði við mig "hey, that's cool. First for the hard of hearing and then for the Japanese people"...svo þegar sama fréttin var búin að koma aftur (á ensku með japönskum texta) þá varð skjárinn aftur svartur og þá kom sama mjúka karlmannsröddin "And now without subtitles". Ég og Ann horfðum á hvort annað og veltum fyrir okkur hvaða helvítis tilgangur það væri að sýna sömu fréttina í þriðja skiptið á ensku, en núna án texta sem hafði verið tvisvar sinnum áður. Við reyndum að finna einhverja hópa sem högnuðust á þessu, en svo þegar fréttin var búin þá kom aftur svartur skjár og sama mjúka karlmannsröddin, miklu glaðari en áður: "And now once more with english subtitles"...og svo kom fréttin aftur. Þegar hún var búin í fjórða skiptið þá komu auglýsingar. Hvaða undarlega bull er þetta? Mér datt helst í hug að þetta væri eitthvað svona "learn english" thing fyrir japana, en samt ekki því að þetta var bara basicly frétt sem sýndi grátandi börn og vonlitlar mæður þeirra. Ekki svona eins og heima þar sem nýbúakennslan er, þar er allir alltaf voðalega happý. Ég skil þetta ekki fyrir mitt litla líf. Svan:: miðvikudagur, október 01, 2003 :: Dorktower er fyndinn Var að finna tvo dáldið góða Dorktower sketch-a :) 1 og 2. Svan Fyndið Keypti mér Japönskukennslubækurnar í dag. Það var stungið undir coverið auglýsing á japönsku. NB þetta eru Elementary books um japanskt tungumál, ég held að þessi auglýsing sé ekki að fara að koma neitt mikilli söluaukningu á whatever sem er verið að auglýsa :þ Svan Begga að gera góða hluti Begga vinkona mín fær ágætis útreið hjá Katrínu :p Svan Fyrsti skóladagurinn Fór í þrjá tíma í dag. Accounting, Intermediate Macroeconomics og Introduction in Japanese economics and business. Accounting. Þetta var einhver sá mesti bull tími sem ég hef nokkurn tíman farið í. Einn og hálfur tími fór í að skrifa upp eftir kennaranum skilgreiningar á eftirfarandi atriðum: "Balance sheet", "economic movement", "numerical", "descriptive", mainly, "economic activities", "firm", "unpredictable matters", financial statement, "financial movement" og "Income statement". Sú staðreynd að við þurftum að útskýra "mainly" er alveg stórfurðulegt. Kennarinn var gersamlega að fara á taugum af stressi og kennsluaðferðir hans voru frekar skrýtnar. Hann byrjaði á því að fylla töfluna af texta og svo tók þegar hann þurfti að halda á meira plássi á töflunni þá tók hann upp töflupúðann og strokaði út eitt orð, og skrifaði annað orð í staðinn og tók svo upp töflupúðan og skrifaði annað orð.........og svo framvegis.........tók allan tíman í heiminum. Introduction in Japanese economics and business: Jón Þrándur Stefánsson kennir þennan kúrs. Mér leist ágætlega á hann, bæði stjórnunarkúrs sem og saga viðskiptalífs í Japan. Hann lítur út fyrir að verða frekar strembinn, en mér líst mun betur á hann heldur en þennan bókhaldskúrs því mér leið eins og í þriðja bekk í Verzló aftur. Intermediate Economics Mér sýnist kennarinn ætla að kenna Keynsíska hagfræðikenningar. Hann gerir ráð fyrir því að við séum búin að klára grunnhagfræðina og þessa klassísku, en það eru ekkert allir búnir með hana og geri ég ráð fyrir því að þeir sleppi þessum kúrsi því hann virðist ætla að verða ágætlega strembinn, að minnsta kosti miðað við Accounting. Það var reyndar ekki farið yfir neitt nýtt í dag en ég býst við að taka hagfræðina og stjórnunina. Morgundagurinn verður nokkuð langur, en þar sem ég er ekki með stundatöfluna fyrir framan mig þá veit ég ekki neitt hvað ég verð að gera, það eina sem ég veit er það að ég verð til klukkan 17 í skólanum :s...frá held ég 8:50...sem er ekki nógu sniðugt. Svan:: þriðjudagur, september 30, 2003 :: Puzzledonkey.org Ókei, ég er búinn að reyna og reyna að svara fyrstu spurningunni en ég get það ekki. Buddy og Malcolm eru líka búnir að vera að hjálpa en ekkert gengur... hjálp einhver? Svan Leigan Borgaði leiguna í dag. 11.800 yen fyrir tvo mánuði. Það eru heilar 8.200 krónur rúmar. Fyrir tvo mánuði. Ekki get ég kvartað. Svan Karíóki bar og bananabjór Ég smakkaði bjór með bananabragði í gær. Hann var gulur. Ég er ekki að tala um "bjórgulur" (that should be a color) ég er að tala um massívan gulan lit sem þú sérð ekki í gegnum.......and it was wierd. Ekki vondur, en ótrúlega furðulegur. Svo smakkaði ég Saki, bjóst við að fá 1 staup eða eitthvað en fékk svona minikönnu sem innihélt 5 staup. Þetta er alltof sætur drykkur. Manni kligjaði alveg við þessu. Ég held samt að þetta hafi verið svokallað "sætt saki", ég að minnsta kosti vona það því ef það er til eitthvað sætara saki heldur en þetta þá er eitthvað alvarlegt að. Svo fórum við skiptinemarnir á karíóki bar í gær ooooggg það var svona nett upplifun. Það voru þrettán herbergi, öll hljóðeinangruð sem að fólk var inn í, annað hvort í hóp eða einsamalt að gaula. Ég hefði gefið hægri hendina á mér fyrir vídeókameru því að Bendt og Andrei voru svo stórfenglega út úr því þegar þeir tóku Bohemian Rapsody. Mér var að sjálfsögðu "ýtt" upp á svið (af því að ég hafði svo mikið á móti því) og tók ég svona um 5-6 lög. Svan Eitt besta hrós sem ég hef fengið á ævinni Nokkrir skiptinemarnir, þar á meðal einn kani, héldu að við töluðum ensku á Íslandi vegna þess hve enskan mín væri góð :D Svo höfum við Bendt verið að tala mikið saman á ensku svona í kurteisispælingum gagnvart hinum, þannig við stökkvum ekki allt í einu yfir í íslenskuna...fólk gæti misskilið eitthvað, haldið að við séum að tala illa um þau eða eitthvað. Svo allt í einu þegar við fórum að tala saman á íslensku út af einhverju, þá vorum við spurðir hvaða tungumál þetta væri :) Svan Hvatning til að drulla mér frammúr snemma Þegar það er morgun hjá mér (eld snemma) þá er seint um kvöld heima. Fínasti tími fyrir internet tjatt :) I do a lot of catching up during these early morning hours... Svan:: mánudagur, september 29, 2003 :: ADSL leiðangur Fumi og Takayo eru að reyna að finna fyrir okkur provider fyrir nettenginu í herbergin okkar. Man hvað mig langar í nettenginu í herbergið mitt. Mér sýnist að sá sem við tökum sé með 25.600 yena startkostnað og svo 5.800 yen á mánuði fyrir 12mbps tengingu (ef þetta eru 12 megabæti per second þá brosi ég út að eyrum :D). Þar sem Ísland er held ég eina landið sem telur magn sem er niðurhalað þá held ég að download-in séu unlimited...og með svona hraða tengingu þá ætti maður að geta nýtt það töluvert :D Svan Loksins loksins Núna erum við Bendt orðnir kúl. Við eyddum síðustu yenunum okkar í að fjárfesta í regnhlífum. Við erum reyndar ekkert voðalega kúl því regnhlífarnar okkar eru glærar og úr þynnsta plasti í heimi (enda kostuðu þær 300 yen í bókabúðinni). En nevertheless þá erum við stoltir eigendur regnhlífa. Svan:: sunnudagur, september 28, 2003 :: Sprínklíng de fluur Á einhver einhverja Swedish chef scetcha úr the Muppets? Oh, yeah and I need a CD key for Half Life...ef einhver nennir að senda mér meil yrði ég voðalega glaður :) Svan Ruslafötur Eitt sem ég skil bara ekki fyrir mitt litla líf. Allar göturnar hérna úti eru geðveikt hreinar, en það eru nánast hvergi ruslafötur. Heima er ruslafata á öðrum hverjum ljóastaur í miðbænum, samt er mun meira af drasli þar en hér. Ég hef verið að drekka vatn úr flösku og kannski gengið með þessa flösku á mér í svona 10 mínútur áður en ég nenni ekki að halda á henni lengur og labba inn í einhverja random búð og bið þá um að henda þessu fyrir mig. Þá er venjulega horft á mig og spurt af hverju ég endurvinni þetta ekki eða hendi þessu í þartilgerðar fötur....well, because there aren't any. Kannski eru þeir að fela þetta fyrir unsuspecting foreigners sem verða sektaðir fyrir að henda rusli á göturnar. Svan Pakkningar Japnanir pakka öllu geðveikt vel. Ég keypti mér kexpakka um daginn, þar sem öllum kexkökunum er pakkað inn sérstaklega, ein og ein í pakka. Ostur, allar sneiðarnar í sitthvorri pakkningunni. Ritz kex er einna skárst þar sem 10 eru saman í pakka (sem er btw inn í aðalpakkanum). Skinka, 3 stykki saman í pakka en þú kaupir 6, þannig það er einn aðalpakki með tveimur "undirpökkum". Ég hitaði mér upp minipizzur í gasofninum mínum í hádeginu í dag. Ég setti eina ostsneið eina skinkusneið og svo nokkrar auka pepperonisneiðar ofan á hvora minipizzuna, en þar sem pizzunum er bæði pakkað í aðal og undirpakka líka þá var allt eldhúsið þakið tómum plastpakkningum hingað og þangað út um allt. Jógúrt, jógúrt er í minnstu pakkningum í heimi, ég held að það sé 0,1 líter í hverjum pakka. En það er allt í lagi því þú kaupir jógúrtið í six pack. Ég borða minnst 3 á hverjum morgni, út á eina skál af morgunkorni. Af hverju er þetta ekki í einum pakka? Það má guð vita. Ég er hættur að naga á mér neglurnar út af þessu, einhvernvegin þarf ég að getað opnað allt þetta drasl án þess að þurfa að ganga með hníf eða skæri á mér allan daginn. Svan ummm.....??? Er efsta commentinu nokkuð beint til mín? Nei, ég held ekki en það gæti svo sem alveg verið... Svan Regnhlífar Ég og Bendt erum voðalega mikið út úr hérna í japan, því við eigum ekki regnhlífar. Það eiga allir(!) regnhlífar. Ef það er svo mikið sem ský á himni, þá ganga allir um með regnhlífar. Við fórum í svona tour um campusinn á föstudaginn síðasta og þegar einhver yfirmaðurinn stakk upp á því að fara út að skoða heilsugæsluna, þá sagði guide-inn okkar alveg beint frá hjartanu: "But it's raining" og setti upp svakalegan hvolpasvip svona til að grátbiðja hann um að neyða hann ekki út. Ég og Bendt erum náttla eins og alvöru Íslendingar og látum rigninguna ekkert á okkur fá og allt regnhlífarfólkið starir á okkur. Þeir sem eru það óheppnir að vera ekki með regnhlífar þegar þeir labba út nota eitthvað annað til að skýla á sér höfðinu. Ég sá stelpur nota stílabækur sem voru fullar af skrifuðum texta til að skýla sér fyrir rigningunni, og að sjálfsögðu voru bækurnar orðnar ónýtar af bleytu. Heima þá yrði þetta hinsegin, það er að bókunum yrði skýlt á meðan maður yrði sjálfur blautur. Furðulegt Svan Eitthvað sem ég hélt ég myndi aldrei lenda í Þið vitið svona smakkbásar í súpermörkuðum...ég lenti í einum svoleiðis sem var að bjóða að smakka rauðvín og hvítvín...í súpermarkaðnum. Þetta var svo súreallískt að það hálfa væri nóg. Það er ekki nóg með að það skuli vera búðir opnar 24/7 sem selja áfengi úr ísskápum, heldur eru gefin smökk í svona básum. Mér fannst þetta alveg hrikalega furðulegt, sérstaklega hvernig þetta er heima. Sjáiði þetta fyrir ykkur í ÁTVR? Svan Hvaða helvítis Ég held að skarðið á milli framtannanna á mér sé að stækka óðfluga...ekki er ég að nenna að fá spangir aftur! Svan:: laugardagur, september 27, 2003 :: Heimkoma Ég er nokkuð ákveðinn í því að koma heim í vorfríinu mínu. Það er tæpir tveir mánuðir, og ætla ég að eyða að minnsta kosti einum heima á Íslandi. Restin af fríinu fer annað hvort í það að skrifa þessa blessuðu BS ritgerð eða þá að ferðast um Japan eða Asíu. Við vorum jafnvel að spá í að fara til Nýja Sjálands eða Ástralíu, en það mun bara lengja flugið fyrir mig heim þannig Thailand er hæst á óskalistanum hjá mér at the moment :) Ég ætla bara að láta þetta ráðast allt saman... Svan The name is Ash ... [cocks shotgun] ... housewares Foreldrar mínir eru jafnvel að spá í að koma í heimsókn til mín um jólin til Japans. There are a number of things that I would like them to bring me. Í fyrsta lagi þá langar mig í auka batterý fyrir laptoppinn minn og tölvuleiki(!) gawd hvað mig vantar eitthvað til að stytta mér stundir með. Warcraft 3 og Morrow wind eru alveg málið. Invisibles serían sem mér tókst að gleyma heima hjá mér mætti líka fá að fljóta með. DVD myndir...where to begin??? Það væri alveg ágætt að fá bara allt innihald DVDskápsins heima hingað uppeftir. Svo er möst að kaupa Lord of the Rings: The Two Towers extended edition og bring it to us. Humm... mér á eftir að detta eitthvað meira í hug I'm sure...en þetta er svona það helsta. Svan Netsambandsleysi á sunnudögum Öllum tölvustofum í skólanum er lokað á sunnudögum okkur skiptinemunum til mikils ama. Ef ég þarf nauðsynlega að komast á netið, þá get ég brotist inn (literally) inn í eitt vinnuherbergi og þar er meira að segja almennilegt msn og allt... Jei, ekki þetta bölvaða www.wbmsn.com kjaftæði. Ég hef annars verið að nota tjatt forrit sem að Bendt er með á netinu vegna þess að þetta wbmsn er í rauninni algjörlega ónothæft. Svan Traditional japönsk tónlist Fór á tónleika í dag, með Bendt, Andrei, Joi, Christina, Takayo og Fumiko. Vinkona Takayo bauð okkur. Þetta var vægast sagt algjör snilld. Tónleikarnir voru 3 tíma og korter og voru tekin 8 lög. Kimino-in sem konurnar voru í voru ótrúlega flott, ég var að plana að kaupa svoleiðis handa my significant other en mér var sagt að traditional kimono kostar svona um 500.000 yen...sem er aðeins fyrir ofan mín budget mörk (yenið er á 0,7 krónur). Ég var duglegur að taka myndir af tónleikunum, þar á meðal 3 myndbandsbúta sem eru um 80 mb samtals, þannig ég efast um að ég hendi þeim á netið þegar ég verð kominn með tenginu í herbergið mitt þrátt fyrir að mig langi til að deila þeim með heiminum... Svan Skrýtni maðurinn á hjólinu Sami gaur og stoppaði mig og Bendt um daginn og fór að monta sig af því að hann kynni ensku fór að tala við okkur aftur í dag, og endurtók samtalið alveg 100%. Hann hlýtur að sitja fyrir fólki, því þetta var á nákvæmlega sama stað. "Hi, I speak english"..."What's your hobby"..."Where are you from" Við erum víst ekki fyrstu skiptinemarnir sem lenda í honum :p Svan Semsagt.net liggur niðri núna :( Vegna tæknilegra örðuleika (ofnotaðasta hugtak í heimi) þá liggur Movable Type síðan mín niðri, en ég á von á að hún kicki upp bráðlega. Ég er að spá í að hreyðra um mig hérna aftur þangað til...smá flashback :) Svan meta http-equiv="refresh" content="0; URL=http://www.semsagt.net/svan":: fimmtudagur, júní 05, 2003 :: Íslenskir stafir farnir líka! That's it, ég nenni ekki lengur að vera hjá blogger, er farinn eitthvað annað! Svan What the fuck??? Ég opnaði blogggerinn og þá kom eitthvað nýtt look á "edit your blog" og nú eru allar færslurnar mínar horfnar. Ég er ekki sáttur. Ég er eiginlega margt annað en sáttur! Svan Tilgangslausa staðreynd dagsins Þetta fékk ég sent frá einstakling sem er voða annt um að ég hætti að naga á mér neglurnar. Ef þú nagar á þér neglurnar þá innbyrðirðu meira af sýklum heldur en ef þú myndir sleikja eina klósett skál. Mikið er nú gott að vita að það sé einhver sem hugsar vel til manns :) Svan Tvær stöðumælasektir á einu hádegi! Það voru settar tvær stöðumælasektir á bílinn minn í hádeginu, ein fyrir utan Íslandsbanka en þar sem ég var að taka út klink svo ég gæti sett í mælinn þá sleppti stöðumælavörðurinn mér og hin fyrir utan stjörnubíó, en þar náði ég að tala stöðumælavörðin til og hann sleppti mér líka, Þar sparaði ég mér 3.000 króna útgjöld :) Svan:: miðvikudagur, júní 04, 2003 :: Kvörtun frá Braga (af öllum mönnum) Bragi plebbi var að kvarta undan því að færslurnar á blogginu mínu væru of stuttar. Reyndar er eitthvað til í því svona þegar maður fer að lesa, en lengstu bloggin mín eru langar lýsingar á djömmum í miðbænum :$ Æj ég veit það ekki, mér finnst alltaf eins og það sé ekkert að ske hjá mér þegar ég er byrjaður að vinna þannig ég hef voða lítið að segja eitthvað. Svan Loksins... Loksins var "And then nothing turned itself inside out" með Yo La Tengo fáanlegur í Skífunni. Skil ekki hvernig þeir geta verið svona lengi að fá svona gamla diska. Nú er það bara að bíða eftir Ephemeru. Svan:: þriðjudagur, júní 03, 2003 :: Eggin Spurning um að henda Eggjunum líka á linkalistann minn þar sem ég er nú að fara að uppfæra hann á eftir. (Ekki það að ég hafi einhverja hugmynd um hverjar þetta eru) Svan TheAnton.com Loksins tókst Tona að fá sér gott url á bloggið sitt. Eftir að hafa verið með asnalegustu slóðir í sögu netsins á síðunum sínum þá er það nýjasta http://theanton.com actually alveg ágætt. Spurning um að henda drengnum á linkalistann minn? Geri það ábyggilega seinna í dag. Svan Til hamingju... ...með afmælið í dag Tótla mín :) (ókei, færslan kom þann þriðja...en anywho, til hamingju :) Svan Reiðtúr Skellti mér með misserishópnum mínum á hestbak áðan (voða sniðugur að gera það tognaður í baki). Pétur lofaði mér því að ég myndi ekki finna fyrir bakinu á mér og það var nokkrun vegin rétt hjá honum, ég held ég sé jafnvel að vera betri en það er bara spurning um morgundaginn því það kæmi mér ekki á óvart að ég fengi harðsperrur á stöðum sem ég vissi ekki að væru til. Þetta var í fyrsta skiptið síðan.....ja eiginlega bara síðan síðast, ég veit ekkert hversu langt er síðan ég fór á bak en það er a.m.k. heillangt síðan. Maður þarf að gera þetta oftar. Svan Lesefnið mitt Var að lesa bók um mann sem átti heima í litlu herbergi þar sem að litlir kettlingar duttu niður svona rennu og hann barði þá með hamri jafnóðum. Svo einn daginn fattar hann að hann geti komist út úr þessu herbergi og áttar sig á því að hann geti lamið allt með þessum hamri sínum og þá verður hann heví glaður. The end. Johnen Vasquez er snillingur :) Svan Manndrápsdómurinn um daginn Djöfulli finnst mér 2 ár fyrir manndráp ekki vera neitt! Algjört bull. Ég veit ekki nákvæmlega málsvexti en einhverstaðar heyrði ég að þeir hefðu ráðist á mann sem þeir þekktu ekki neitt og barið hann til dauða. 2 ár fyrir það. Varla er eitthvað af þessu skilorðsbundið? Svan:: mánudagur, júní 02, 2003 :: Hvað er í tækinu Ephemera: Ballons and Champagne Bob Dylan: Freewheelin Apparat Organ Quartet: Apparat Organ Quartet High Fidelity Soundtrack-ið Svan 16 tíma svefn Held ég hafi sofið í rúma 16 tíma í gær. Sem var voða ljúft. Maður þarf að eiga fleiri svona daga það er nokkuð ljóst. Svan Ái Fór í körfubolta í gær og tognaði svo harkalega í bakinu að ég er að deyja. Ái hvað þetta er vont, ég get varla setið. Jæja nú hef ég afsökun fyrir því að þurfa ekki að lyfta neinu þungu (smá pollyönnuleikur). Svan:: laugardagur, maí 31, 2003 :: Pottafélagsdjamm Fór á Hard Rock með pottafélaginu, eða að minnsta kosti þeim sem komust en það voru Bendt, Bragi, Dagur og svo kíkti Valli í smástund. Maturinn kom mér á óvart því ég hélt að staðnum hefði farið hrakandi undanfarið en maturinn var alveg mjög góður. Svona um 9-10 leytið þá langaði ameríkönunum á borðinu við hliðiná að biðja um að láta flytja sig því við létum eins og hálfvitar. Við sungum með öllum lögum sem voru spiluð (sérstaklega var gaman að gaula með Simply the best og horfa á hina hálvitana dansa með á ganginum á milli borðanna), við allir heimtandi að þjónustustúlkurnar í mini-pilsunum settust við básinn okkar svona til að sumir gætir reynt við þær, við talandi um fólkið á næstu básum eins og það væri ekki á staðnum ("mikið djöfulli er þessi gella (bendir á hana) með ljóta bleika eyrnalokka") það hátt að allir heyrðu hvað við vorum að segja. Sem sagt stuð á Hard Rock. Svo var farið í partý í Garðabænum til Árdísar sem að vinna m. Dússý sys. Tilefnið var bekkjar reunion hjá 6-A (s.s. hjá Braga) og hitti ég þar heilmikið af fólki, eins og til dæmis celebrity-in Kalla og Atla, Óla Húsvíking og svo meistara Hauk (sem má alveg fara að bæta við nýjum dálki á Harðkjarna bráðlega). Í þessu partýi rifjuðum við upp gömul vond Europop dansslagara eins og með ofurbandinu Vengaboys og fórum svo í keppni um hver væri fljótastur að velta Lazy-boy stólnum í stofunni (Atli vann). Bærinn var reyndar frekar dapur, það voru um tólf einstaklingar á 22 um klukkan 1-2 leytið þannig við fórum á kaffibrennsluna og sátum þar til þrjú og fórum síðan bara heim enda á ég að mæta upp á Bifröst á eftir klukkan 14. Svan Tilvitnunin Fylgir svona wannabe tjokkó klipping þegar maður sækir um á Bifröst? Atli Erlendsson Dáðadrengur með meiru þegar Bragi (með nýaflitaða hárið sitt) og ég komum í bekkjarpartý 6-A úr versló ('82 módel). Svan:: föstudagur, maí 30, 2003 :: Myndir frá Japan Var að skoða síðuna hjá Gunna og Maju (þau sem eru út í Japan núna frá Bifröst) og mér lýst bara einstaklega vel á þetta. Íbúðin sem þau eru í er væntanlega svipuð þeirri sem ég verð í og eru þau með nokkrar myndir af henni. Ég hlakka meir og meir til með hverjum deginum :) Restin af myndunum frá þeim er hér. Svan Síðasti dagurinn á Bifröst (svona eiginlega) Morgundagurinn býst ég við að verði með síðustu dögunum sem ég hef eitthvað erindi upp á Bifröst (er að fara í útskriftina). Ég er einhvern vegin ekki alveg að fatta það að dvöl minni þarna uppfrá er svo gott sem lokið. Mig langar ekkert voðalega mikið að fara ég er orðinn svo háður því að vera þarna. Ég held ég taki ekki masterinn þarna uppfrá heldur leiti eitthvað annað, bara svona upp á tilbreytinguna. Það getur samt vel verið að það breytist eitthvað. Svan Tilvitnunin "Hver skýrir börnin sín í þolfalli?" Sigurjón Kjartansson að gera grín af nafninu mínu þegar ég hringdi á X-ið um daginn... Svan Útlönd OMFG hvað mig langar mikið út til útlanda. Ég veit ekki út af hverju en svona gott veður hérna heima gerir það bara meira af verkum að mig langi út. Svan Incredible String Band Af hverju í ósköpunum langar mig svona á þessa tónleika? Ég hef nánast aldrei heyrt í bandinu og það kostar tæpan 4.000 kall inn en mig dauðlangar samt. Plús það að ég kemst ekki því ég er að fara í afmæli. Mér líður samt eins og ég sé að missa af einhverjum þvílíkum atburði... Mikið get ég verið skrýtinn stundum. Svan Vá hvað það er gott veður Ég er búinn að vera í körfubolta í allan dag í góða veðrinu, enda er ég að drepast í löppunum. Maður þarf að fara að hreyfa sig meira ég er alveg búinn að sjá það :) Planið var að skella sér í sund, en mig grunar að næstum öllum í Reykjavík hafi fengið þá hugmynd og því allar laugar fullar (og þá er ekki gaman í sundi)... Annars áttaði ég mig á því í gær að maður á ekki að gera neitt mikilvægt þegar maður er í glasi, það endar bara í vitleysu. Svan:: miðvikudagur, maí 28, 2003 :: Ephemera Ég hef verið að hlusta á disk sem ég reddaði mér á netinu með hljómsveit sem heitir "Ephemera" og diskurinn heitir "Ballons and Champagne" og er ég mjög hrifinn af honum (svolítið væminnn reyndar). Ég ætlaði mér að fara að kaupa hann niðrí Skífu, en það hafði enginn heyrt af honum þar. Þannig ég tékkaði á Amazon.com og er hann ekki heldur til þar(!) Kannast einhver við þennan disk eða þessa hljómsveit yfir höfuð? Ég hlýt að vera að ruglast eitthvað því þetta getur varla verið svona vandfundið því þetta er svona frekar mikil alþýðutónlist. Plús það að ég tel mig þekkja eitthvað af lögunum úr útvarpinu... Svan Jú, þetta er ágætis merki um að maður hafi verið ölvaður kvöldið áður... Svan Þórir og frítími hans Gaman að vita að Þórir hefur lítið betra að gera en að leita af gömlum myndum af mér á netinu :) Svan Uppstillingardagur Það var verið að benda mér á að það væri frídagur á morgun :) Sem er náttla bara snilld. Planið er að fara í grill til Strumpsins í kvöld og óvíst er svo með framhaldið, ég efast samt um að maður taki eitthvað hart á því þó svo að það sé frídagur... Svan Laugardagskvöldið Ég og Ingó félagi minn ákváðum að skella okkur á djammið saman því það eru ár og dagar síðan við gerðum það síðast. Planið var að horfa á Eurovisíon heima hjá Haffa fyrrverandi vinnufélaga okkar Ingó frá Thomsen, bruna þaðan til Einar Elí í partý og svo ætlaði ég að fara í stúdentsveislu á Vídalín hjá fimm stelpum úr Garðabænum og Álftanesi. Partýið hjá Haffa var stúdentsveisla (sem ég hafði ekki hugmynd um, ég hélt að hann væri jafngamall mér en hann var tveimur árum yngri) og var því nóg af svona pinnamat sem var alveg eða gera sig fyrir framan sjónvarpið :). Þar sem Ingó er að vinna sem klippari þá heimtaði hann að fokkast eitthvað í hárinu á mér "til að röffa það aðeins upp" og leyfði ég honum það. Hann gerði það sama við Haffa og einhvern annan í partýinu. Svo skapaðist svona gítarstemming út á svölum, sem eru fyrir framan húsið, og partýið á móti ákvað að taka undir og þau drifu sig líka út á svalir að syngja með "Þið eruð frábær" með Botnleðju. Þegar partýið á móti tók undir þá virtist partýið við hliðiná líka vilja vera með og dreif sig fram á svalir til að syngja með þannig það voru þrjú partý að gaula með "Þið eruð frábær" og var ég sá eini sem kunni alveg lagið þannig allir fylgdu mér í millikaflanum (ekki alveg besti söngvarinn :)... Eftir partýið hjá Haffa skutlaði Dússý sys mér á Rauðarárstíginn og var það skrýtnasta partý sem ég hef á ævinni farið í. Þegar ég kom inn var "Ormurinn Langi" með Tyr á og voru allir að dansa Víkivaka. Svo var farið yfir í færeyska þjóðlaga tónlist og dansaður Víkivaki þangað til að einhver setti á drum-n-bass (skemmtilega ólík tónlist). Á meðan á þessu stóð var Ingó að túbera hárið á tveimur stelpum fram á gangi og varð ég svo óheppinn að spreyjað var upp í mig gríðarlegu magni af hárspreyi og var ég allt kvöldið sturtandi í mig gin og tónik til að ná bragðinu úr kjaftinum á mér (yup, that's the only reason). Myndi maður vera til í það að greiða fólki í öllum partýum sem maður fer í? nei ég held ekki... Ég og Ingó skildum að þarna á meðan hann fór í stelpupartý í Hafnarfirðinum þá fór ég niðrí bæ. Bærinn sem slíkur var ágætur, reyndar endalaust mikið af fólki. Vinkona mín sem vinnur á taxa sagði að það hefði verið álíka að gera eins og á gamlárskvöld þetta kvöld, og trúi ég því alveg. Bæði Eurovision og útskriftir. Ég spurði Ingó af því hvort hann lenti oft í því að þurfa að greiða fólki í partýum og þá sagði hann að hann hefði varla gert neitt annað í þessu stelpupartýi og meira að segja einu sinni gripið í skæri til að snyrta toppinn á einni og hann hefði ekki einu sinni þekkt stelpuna... Hver lætur einhver ókunnugan sem er kominn á sjötta-sjöunda bjór klippa sig í partýi klukkan að verða 2 skil ég bara ekki. En fínt kvöld. Skemmti mér ágætlega og sór þess eið að fara aldrei aftur inn á Nasa. Svan:: þriðjudagur, maí 27, 2003 :: Planið í sumar Mig langar að gera svo mikið í sumar áður en ég fer út að það er alveg fáránlegt. Í júní er planið að vinna, en þar sem mig langar til útlanda í vikuferð eða eitthvað þannig þá gæti vel verið að maður flýji til London eða eitthvað. Fyrsta helgin í júlí verður eydd í Þórsmörk með hársveinafélaginu eins og venjulega (don't ask) og langar mig til að hjóla Laugaveginn vikuna áður og enda svo í Þórsmörk og fara þar á djammið, þarf bara að safna liði sem er til í það. Í þriðju viku júlí er stefnan á að fara þriggja daga ferð í rafting niður Jökulsá Austari með Geira, Ingó, Hemma og fullt af öðru liði. Svo eru það að sjálfsögðu Eyjar um verslunarmannahelgina, það er náttla bara möst. Í lok ágúst ætla ég og Andri Þór að fara til Reading á tónlistarhátíð sem verður náttla bara snilld... Þetta lítur allt voða flott og fínt á pappír en þá er það aðalmálið, það að eiga efni á þessu öllu saman. Það er allt annar handleggur... Svan Hvað er í tækinu Ég er búinn að vera að vinna sem sendill núna undanfarna daga og í nýja sendiferðabílnum er geislaspilari (vúhúúúú) þannig ég hef verið að hlusta á fullt af dóti... Yo La Tengo: Summer sun Dave Matthews Band: Live at Folsom Field The Pouges: If I should fall from grace with god (flottasta jólalag ever er á þessum disk, fairytale from New York) Best of Bob Dylan (volume 1) Svan You have 128 new messages in your other Hotmail folders Jæja þá var verið að slá met í fjölda ruslpósts á einum sólarhring. Núll í gær og eitthundrað tuttugu og átta í dag... Hefur þetta fólk ekkert betra að gera??? Svan Jei! Ég náði þekkingarstjórnun! Jibbí... Svan:: mánudagur, maí 26, 2003 :: Geiri vinnufélagi á djamminu með Jóhönnu Guðrúnu (þessi í miðjunni) Svan Draumar Undanfarnar nætur hefur mig verið að dreyma frekar skýra drauma, þ.e. að ég man vel eftir þeim. Í síðustu viku hefur mig dreymt þrisvar sinnum að ég sé að fara að missa bílprófið út af ölvunarakstri. Don't know why. Ég hef aldrei keyrt eftir að hafa drukkið og ætla mér ekki að gera það, en samt dreymir mig þetta endalaust. Kannski er þetta eins og með yfirkeyrslu- og árekstrardraumana mína fyrir stuttu síðan, eru bara geðveikt súrir en þýða ekki neitt. Svan Tilvitnunin "Hey, hérna mannstu eftir eyrnalokkunum sem ég ætlaði að gefa þér sem voru samlitir bláa bolnum þínum þarna? Ég get eiginlega ekki gefið þér þá lengur því að mamma keyrði yfir þá..." Brot úr samtali sem systir mín átti áðan. Svan Í skóm drekans Góndi á "Í skóm drekans" áðan og fannst hún vera stórfín. Ég er ekki alveg sammála Strympu að hún sé ofmetin, mér fannst hún alveg standast hype-ið sem var búið að myndast í kringum hana. Svan Er það ekki ástæðan fyrir því að tyrkland vann að... ...tyrkir séu bókstaflega allstaðar, er þetta ekki ein útbreiddasta þjóð heims. Að sjálfsögðu hringja þeir og kjósa sitt heimaland... Svan:: sunnudagur, maí 25, 2003 :: Birgittu æði í Bæjargilinu Litla systir mín átta ára er alveg að missa sig í æði fyrir Birgittu Haukdal. Nú þegar eru komin plaköt með átrúnaðargoðinu upp á vegg og nú gengur hún um húsið með headset og ferðageislaspilara syngjandi hástöfum með bæði Írafárs lögum og Open your heart. Gott að hún sé komin með áhuga á tónlist :) Nú er komið að mér að ala hana upp á "réttu" tónlistina. Svan You've got your ball, you've got your chain, tied to me tight tie me up again... Dave Matthews band er búið að vera mikið í spilaranum mínum núna. Ég er alveg orðinn ástfanginn af þessari hljómsveit :) Fór annars niðrí bæ í gær með vinnufélögum og nokkrum öðrum úr prentgeiranum og skemmti mér alveg ágætlega. Umræðuefni kvöldsins voru aðallega hvort lögleiða ætti fíkniefni og hvort væri betra stór eða lítil brjóst og skiptist afstaðan á báðum flokkum alveg í tvennt. Síðan var spilað fúsball á eðalstaðnum 11. Ég fór óvenju snemma heim, svona til að getað átt eitthvern kraft eftir fyrir kvöldið. Í kvöld er ég og Ingó félagi minn að fara í nokkur júróvisíon partý og svo er ég að fara í útskriftarveislu á Vídalín. Það verður sem sagt alveg nóg að gera hjá mér í kvöld... Svan:: föstudagur, maí 23, 2003 :: Nýtt look Ég held að það sé kominn tími á að fá sér nýtt look á þessa blessuðu síðu. Ég kann bara ekki baun í bala á HTML forritun þannig ég er í hálfgerðum vandræðum. Kannski einhver góðviljaður bloggarin myndi vilja aðstoða mig :) Svan Besta vinnuaðstaða í heimi Við hliðina á tölvunni minni niðrí vinnu er ca. 2,5 metra langur skanni og er hann ríflega 1,5 metri á hæð og er hann frá því 1987 eða 1988. Í dag datt fyrirtækinu í hug að blása rykið úr honum með svona háþrýstiloft drasli einhvejru því að rykið var farið að trufla skönnunina. Þannig nú sit ég í 15-16 ára gömlu þéttu rykskýi pírandi augun og hóstandi eins og stórreykingarmaður. Jei hvað þetta verður stórskemmtilegur dagur því búast má við að þetta ástand verði eitthvað frameftir degi. Svan Útvarpið nokkrum dögum fyrir Eurovision Mikið djöfulli eru útvarpstöðvarnar sem eru mest í gangi niðrí vinnu (Bylgjan, Létt og bloddy FM957) ógeðslega leiðinlegar síðustu dagana fyrir Eurovision. (núna mun Þórir ábyggilega kalla mig þröngsýnan á tónlist fyrir að afneita Júrópoppi sem gæðatónlist á sama hátt og hann kallar mig þröngsýnan fyrir að neita að kalla íslenska sveitaballatónlist tónlistarstefnu) Svan Snilldar mynd og símaskrár Við sátum nokkrir félagar að glápa á vidjó í gær á myndina Interstate 60 og var hún með betri straight-to-video myndum sem ég hef séð (btw þá er Ghost World líka mjög góð straight-to-video mynd sem fáir hafa séð). Mæli með henni. Anywho þá pikkaði ég upp símann hjá öðrum félaga mínum eftir að myndin var búin og skrollaði í gegnum símaskrána. Brugðust þessir vinir mínir illa við þessu og sögðu að þetta væri alveg ótrúlega dónalegt af mér... Er þetta almenna viðhorfið? Er tabú að fletta í gegnum símaskrá í gemsum hjá fólki? Ég hef a.m.k. aldrei heyrt um það áður og finnst sjálfum ekkert tiltökumál ef einhver flettir í gegnum mína Svan Læðan í kastljósinu Ég hlakka heilmikið til að sjá hana Svanhildi frænku mína í Kastljósinu. Veit ekki alveg hvenær fyrsti þátturinn er en ég held að hann sé bráðlega, jafnvel í næstu viku... Svan Vei Var að koma iPodinum mínum í lag (ekki það að það hafi verið mikið að, bara smá dútl vinna) og nú verður gaman í vinnunni :) Vá hvað nýji iPod-inn er annars ógeðslega kúl. Ég hefði ekkert haft á móti því að hafa geymt kaupin þangað til núna til að geta fengið mér 30gb gaur, ekki það að ég sé búinn að ná að fylla þann sem ég á núna (20gb). Svo er hann líka þynnri, sem ég hélt bara að væri ekki hægt því að sá sem ég á er rétt undir 2 cm á þykkt. Svan:: fimmtudagur, maí 22, 2003 :: Invader Zim Danni var að segja mér að meistari Johnen Vasquez stæði á bak við Invader Zim þættina. Vá hvað ég verð að redda mér þessum þáttum. Hef ekki séð einn einasta, en þar sem ég er með álíka sick húmor eins og Vasquez skrifar (Squee, JTHM, Bad Art Collection og Filler Bunny) þá ætti þetta að vera eitthvað fyrir mig. Svan Í dag, þann 22. maí, ákváðu allir í umferð höfuðborgarsvæðisins að hætta að nota stefnuljós Ég er næstum búinn að lenda í þremur aftanákeyrslum í dag út af því að aðilinn fyrir framan mig notar ekki stefnuljós. Spurning um hvort ég þurfi kannski aðeins að hætta að vera svona mikið í rassgatinu á bílnum fyrir framan mig :) Svan Út að borða með fræga fólkinu Ég og Geiri vinnufélagi minn fórum á American Style áðan og við sáum Val í Buttercup. Vá það var svo kúl að það var næstum liðið yfir mig. Við þorðum eiginlega ekki að biðja um eiginhandaráritun þrátt fyrir að okkur langaði það báðum. Eða ekki. Hvað hefur annars orðið um skítabandið Buttercup??? Vá hvað er gott að vera laus við það, amk í smástund... Svan Maður veit að heimurinn gengur sinn vanagang þegar... ...Sigga bloggar um skó :) Svan I am the eggman, they are the eggmen, I am the Walrus... Búinn að vera að hlusta á Magical mystery tour í allan dag sem er öllum mönnum hollt :) Annars þá byrjaði dagurinn ekkert sérstaklega vel. Það var fundur niðrí vinnu þar sem að stjórnendur fyrirtækisins, einhver ráðgjafi og ég vorum að tala um benchmarking fyrir prentiðnaðinn og your's truly tókst að sofna. Eða dotta að minnsta kosti. Vá hvað ég var þreyttur og svo var þessi ráðgjafi með alveg allar klisjur og frasa á hreinu (sagði "the moment of truth" svona fimm sinnum á fundinum). Guð minn góður hvað ég vona að ég verði ekki svona viðskiptafræðingur þegar ég útskrifast, sífellt segjandi einhverjar plebbalegar línur sem ég lærði upp úr kennslubókunum, shit. Mútta, sem sat fundinn, að sjálfsögðu hundskammaði mig fyrir að hafa valið þennan tíma til að leggja mig. Hún sagðist hafa velt því fyrir sér að sparka í mig undir borðinu til að halda mér vakandi en ekki lagt í það því það var maður á milli okkar og þá hefði þetta bara orðið meira áberandi :) Svan:: miðvikudagur, maí 21, 2003 :: Dússý sys að fara til útlanda Jæja þá er litla systir mín að fara til Spánar í 2 og hálfan mánuð, og er brottför þann tuttugasta og áttunda. Vá hvað ég á eftir að sakna hennar mest í heimi. Svo nánast um leið og hún kemur heim þá fer ég út til Japans í 11 mánuði. Sem er ekki nógu gott. Við fórum í dag að kaupa hátalara til að tengja við tölvuna hennar sem hún getur tekið með sér út, og eru þetta alveg endalaust góðir hátalarar. Ég tími eiginlega ekki að senda hana með þetta hátalarasett út því hátalarnir við heimilistölvuna eru í einhverju fokki... Svan:: þriðjudagur, maí 20, 2003 :: Skemmtilega jöfn könnunin... Reyndar ekkert alltof margir búnir að kjósa. En fólk virðist hafa mjög mismunandi álit á því hvort Meat Loaf sé kúl eða ekki. Svan MSN vesen og blogg vesen Af einhverjum ástæðum þá get ég ekki náð mér í MSN í tölvuna mína niðrí vinnu. Það er að sjálfsögðu first priority að redda því veseni... Second priority er að geta skoðað blogg síður, sem er ekki heldur hægt niðrí vinnu (god knows why). Third priority er að byrja að vinna :) Svan Rekstrarfræðingur Var að átta mig á því að ef ég hef náð prófinu í gær (sem ég býst fastlega við, hann þarf að vera virkilega vondur við mig til að fella mig aftur) þá get ég titlað mig rekstrarfræðing. Sem er náttla bara kúl :) Svan:: mánudagur, maí 19, 2003 :: Ekki besta leið í heimi til að starta sumrinu Kláraði úrbótaprófið áðan og gekk nákvæmlega jafn vel/illa og síðast :) Ég hef nákvæmlega enga tilfinningu fyrir því hverng mér gekk í þessu prófi og það fer alveg heví í taugarnar á mér. Anywho þá er ég kominn í sumarfrí sem er náttla bara snilld. Á leiðinni heim þá var ég stoppaður fyrir hraðakstur. Var að koma úr framúrakstri þegar ég mæti löggunni og næ að hemla eitthvað niður, en það var skotið á mig á 110 sem þýðir 20.000 kall í sekt held ég. Ég veit alveg um betri leiðir til að starta sumrinu en að fá hraðasekt. Samræðurnar í löggubílnum voru frekar áhugaverðar Lögga 1: ég verð nú bara að hrósa þér fyrir hvað þú varst snöggur að hemla þig niður, þú sparaðir þér heilmikinn pening á því. Ég: þakka þér fyrir :) Lögga 1: ég er nú ekki viss um að þú eigir að vera neitt sérstaklega stoltur af því að sneiða framhjá lögunum á þennan hátt... Lögga 2: ...og hvaðan ertu að koma ungi maður? Ég: Ég er að koma frá Bifröst, var að klára síðasta prófið áðan Lögga 2: já til hamingju með það...þú ert ekki byrjaður að fagna próflokunum er það nokkuð? Ég: ummm.... hvað meinarðu? Lögga 1: Viltu blása í þennan staut fyrir mig...... Já, helvítis fíflin létu mig blása til að tékka vínmagn klukkan 11:45 á mánudegi! WTF?!?!? Skemmtilegt álitið sem Borgarneslöggan hefur á Bifröst, ekkert nema sukk og fyllerí alla daga, líka fyrir hádegi á mánudögum. Svan Eftir hádegi á morgun... ...verð ég kominn í langþráð sumarfrí! Eins og venjulega þá hefst fríið á því að ég mæti í vinnuna klukkan 8 daginn eftir síðasta próf. Ég elska þetta "frí" sem maður fær á sumrin :) En ég get ekki kvartað mikið, ég er þó með vinnu sem var víst ekkert voðalega auðvelt að fá í sumar. Svan Læri læri lær Ég er búinn að vera frekar duglegur að læra í dag, sérstaklega miðað við að ég var á djamminu niðrí bæ til klukkan 5 í nótt. Ég ætla að skella mér á Bifröst núna bráðlega. Mikið verður gott að klára þetta helvíti. ps. henti inn nýrri könnun Svan:: sunnudagur, maí 18, 2003 :: Dazed and Confused Ég veit ekki út af hverju, en alltaf þegar ég er að læra þá langar mig til að horfa á Dazed and Confused. Svan:: laugardagur, maí 17, 2003 :: Nætursímtöl Það er fátt skemmtilegra en að vera vakinn upp við símhringingar frá fullum vinum sínum klukkan að verða 6 um nótt þessa fáu föstudaga sem maður er ekki á djamminu... Svan Hvað er í tækinu White Stripes: Elephant (what can I say, það er langt síðan ég hef verið jafn heillaður af einum disk) Meat Loaf: Bat out of hell (pabbi er ennþá að hneykslast á því að ég hafi keypt þennan disk) Genesis: The lamb lies down on broadway live bootleggur (föðurbróðir minn að reyna að hafa áhrif á mig) Meistari Megas: Þrír blóðdropar (megas náttla bara snillingur) Svan Ráðstefnan í dag Fór á stórskemmtilega og fræðandi ráðstefnu í dag um uppsetningu og hönnun á markpósti, hvað ber að hafa í huga og hvað á að varast. Lærði helvítis helling og bætti þetta töluvert við það sem við vorum að gera í misserisverkefninu okkar í vor (kynningaráætlun fyrir Svansprent). Fyrirlesarar voru Michael Turton sem er eigandi hönnunarstofu út í Bretlandi, einhver gaur frá Offset/ePóstur og svo einhver viðskiptafræðingur sem titlaði sig sem "sérfræðing í beinni markaðssókn". Ég var nú ekki alveg 100% sammála öllu því sem kom fram hjá þessum viðskiptafræðing en hún sá ekki sólina fyrir "gervi"persónulegum póstum ("kæri jón, hefur þú kynnt þér nýja blablablabla frá..." og svo framvegis) og sagði þetta vera nánast eina málið í framtíðinni. Svo var hún bara svo andskoti plebbaleg greyið. Annars þá komu nokkrar reynslusögur frá hinum og þessum aðilum. Ein var á þá leið að eitt fyrirtækið reyndi að láta alla þá sem voru titlaðir sem markaðsstjóra eða framkvæmdastjórar hjá fyrirtækjum landsins vita af markpóstsþjónustu sinni (fengu listan hjá Gallup og voru meðal annars einyrkjar á honum). Þar sem þetta voru allir þeir sem titlaðir eru markaðsstjórar eða framkvæmdastjórar þá innihélt þetta útfarastjóra sem sendu flestir tilbaka að það væri ekki viðeigandi að greina markhópa og senda þeim póst með einhverjum catchy slagorðum til að kynna þjónustuna í þeirra starfi :) Önnur tengd saga var þannig að fyritæki eitt var að kynna útvarpsþátt sem hét "vaknaðu til lífsins" eða eitthvað álíka og á umslaginu stóð stórum stöfum nafn þáttarins, "Vaknaðu til lífsins", og undir þessu slagorði kom svo nafnið á viðtakanda. Í einu tilfellinu hringdi ekkja ein alveg brjáluð yfir því hversu óviðeigandi þetta hefði verið því pósturinn hefði verið sendur á eiginmann hennar sem hafði látist daginn áður. Það varð víst eitthvað heví mál út úr þessu, lesendabréf í moggan og allt... Svo fékk ég svona spjald með nafninu mínu og frá hvaða fyrirtæki ég var og þurfti ég að útskýra það fyrir nánast öllum gestum hvaða Sverrir væri pabbi minn því þeir eru ekki nema fjórir sem heita Sverrir sem vinna hjá okkur. Svan Matrix og lestrarleti Það er eins og maður finni sér alltaf eitthvað betra til að gera en að læra þegar maður þarf virkilega að vera að því. Núna áðan ákvað ég að skella mér í 11 bíó og svo eftir það förum við ábyggilega í bæinn eitthvað. Vá hvað ég þarf að taka á því í lestrinum á morgun, shit! Anyways þá er ég kominn í mun betra skap heldur en ég var í áðan :) sem er mjög gott. Var að renna yfir síðustu færslur á blogginu mínu og mér sýnist ég hafa verið frekar down núna undanfarið (og heimsóknarfjöldinn á dag niðrávið sem sýnir það og sannar) þannig það er spurning um að kippa skapinu í lag og hætta að láta þennan próf djöful draga mig svona niður :) Svan Tók aðeins til í linkasafninu mínu Henti út nokkrum letingjum og bætti Tótlu við :) Svan Nett pirraður Ég er svona nett pirraður í dag, veit ekki alveg út af hverju. Eyddi deginum í að sitja ráðstefnu um nýtingu á beinni markaðssetningu á Íslandi og var hún afar áhugaverð og góður matur og fínar veigar. Annars langar mig að gera eitthvað sniðugt í kvöld, þrátt fyrir að ég eigi faktískt að vera að læra. Svan:: föstudagur, maí 16, 2003 :: Fyndinn banner á Baggalúti Skemmtilegt skot á framsóknarflokkinn. Svan Lærdómurinn út um gluggann Ég er að fara að samfagna Þóri út af prófunum á eftir og svo fer morgundagurinn í það að fara á einhverja ráðstefnu fyrir Svansprent og þarf ég að taka niður helstu atriðin sem koma þar fram og þess háttar og er þessi ráðstefna frá 11 til 18 held ég þannig ég læri ekki mikið á morgun. Vá hvað helgin verður leiðinleg! Svan Ég nenni ekki að byrja að læra! Í allan dag er ég búinn að stara á þekkingarstjórnunarbókina mína, reynandi að sannfæra mig um að ég þurfi að fara að opna hana til að læra. OMG hvað ég nenni því ekki!!! Svan Paradise by the dashboard light Hvað er svalara en að rúnta niður laugaveginn í góðu veðri að blasta "paradise by the dashboard light"? Mér dettur ekki margt í hug :) Svan:: fimmtudagur, maí 15, 2003 :: Mig langar að fagna sumarfríi... Þrátt fyrir að ég sé ekkert voðalega mikið kominn í frí út af þessu prófi á mánudaginn. Býst samt við að kíkja eitthvað út í kvöld, veit samt ekki hvert, né með hverjum... bara að gera eitthvað. Svan:: miðvikudagur, maí 14, 2003 :: Herma eftir Þóri Samkvæmt þessari síðu á IMDb þá á ég afmæli sama dag og töffarinn Sean Connery, beibið Claudia Schiffer, goðið Tim Burton, Leonard Bernstein sem átti eina ofmetnustu söngvamynd ever (West side story), Regis Philbin (as in Kathy Lee & Regis) og glysrokkaranum Gene Simmons. Þetta er líka frekar mislitur hópur einstaklinga. Svan Now I wanna be your dog... Er ég þegar byrjaður að plana helgina og það á þriðjudegi :) Ég er að fara í endurtektarpróf í þekkingarstjórnun á mánudaginn næsta og ætla ég mér byrja að læra fyrir það á morgun og hinn en ég ætla að reyna að eiga mér frí föstudag út af hugsanlegu skólafélagsdjammi. Svo er þetta frumsýningarhelgi Matrix 2 og hefði ég ekkert á móti því að sjá hana fljótlega en ég efast um að það verði um helgina :( Kláraði viðveruna í dag og við þurftum ekki að vera vond, þannig að fallaxar og böðla ímyndin sem við fengum nokkrir í hópnum í fyrra festist ekki á okkur. Er annars kominn í bæinn með allt mitt hafurtask vegna þess að ég þurfti að skila af mér herberginu mínu í dag. Ég held að ég sé samt búinn að redda mér gistingu í sófanum hjá Beggunum þegar ég fer að læra fyrir þetta bölvaða próf um helgina sem er ágætt. En nú er ég búinn að sverja það fyrir sjálfum mér að ég ætla aldrei að falla aftur í prófi, þetta er allt of mikið vesen. Svan:: þriðjudagur, maí 13, 2003 :: Henti inn nýrri könnun Svan Voða rólegur dagur Ég er nánast búinn að sofa í allan dag. Kannski er þetta spennufallið eftir málsvörnina, maður veit ekki. En nú er það pottaferð, maður má ekki sleppa henni. Verst að ég á ekki neinn bjór :( Svan:: mánudagur, maí 12, 2003 :: Bjarni Jóns í fjórða skiptið Jæja, þá er fjórðu málsvörninni minn hér við skólann lokið og fengum við Sigga Ragg (markaðsfræðikennara) og Bjarna Jóns (stefnumótunarkennara) sem yfirsetur kennara og svo Ásmund (markaðsfræðikennara) sem fundarstjóra þannig við vorum með stórskotalið hjá kennurum. Undarlegt að ég, Hemmi og Pétur M. skulum hafa fengið Bjarna Jóns í allar málsvarnir hjá okkur, það er ekki eins og við höfum verið með stefnumótunarverkefni öll misserin :) Annars gekk bara fínt en þar sem mér er bannað af hópmeðlimum að giska á einkunn á netinu þá ætla ég að halda kjafti í þetta skiptið um hvaða einkunn ég spái... Svan Málsvörn á morgun Þá er það málsvörn á morgun og ég er ekki vitund stressaður, sem er náttla bara mjög gott :) Við erum búin að vera að vinna að þessari kynningu reyndar alveg fáránlega lengi enda allir í hópnum frekar andlausir og latir, sem er svo sem skiljanlegt daginn eftir kosningavökuna. Svo á ég að vera í viðveruhópi á þriðjudaginn, síðan er það bara upplestur fyrir endurtökuprófið á mánudaginn næsta :( Svan:: sunnudagur, maí 11, 2003 :: Marlon Brando, Pocahontas and me... Jæja, ég er kominn uppeftir á Bifröst að undirbúa málsvörnina sem verður á mánudagsmorguninn. Ég og Hemmi brunuðum hingað uppeftir í hálfgerðu panicki því við ætluðum að hittast hópurinn klukkan 12 en að sjálfsögðu tókst fyllibyttunni mér að sofa yfir mig og lögðum við ekki af stað fyrr en klukkan 12 :$. Við erum með lokaða málsvörn annað árið í röð. Mér finnst það vera leiðinlegra heldur en að hafa hana opna því það er alltaf gaman að hafa áhorfendur (sama hversu fáir þeir eru :) Skemmti mér annars fínt í gær reyndar var endalaust leiðinlegt á Vegamótum. Svo lenti ég í rökræðum við stelpu sem var frekar tóm í hausnum um stjórnmál sem ég hefði helst viljað sleppa. Fór á Kofa Tómasar Frænda og þar var fínasta stemming og tónlistin var skemmtileg. Svo fórum við á Gauk á Stöng og hef ég ekki farið inn á hann í heillangan tíma en þar var "ofur"bandið á móti sól að spila einhver meiriháttar leiðindi en samt fínt að vera þarna inni... En núna er það að búa til glærushow fyrir málsvörn og hlusta á meistara Neil Young :) Svan Auglýsi eftir partýi Vinir mínir eru annaðhvort að telja atkvæði eða ætla almennt ekki á djammið þannig ég er svolítið partýlaus í kvöld. Ef einhver sér aumur á mér og er tilbúin/n til að bjóða mér í partý í kvöld þá verð ég voða glaður :) Svan:: laugardagur, maí 10, 2003 :: Þynnka Það er alveg brjálæðislega gott veður úti og ég er hreinlega of þunnur til að geta notið þess. Það var tekið frekar mikið á því í gær, spurning um að gera það aftur í kvöld :) Svan:: föstudagur, maí 09, 2003 :: Litblindubrandarar Það er alltaf hægt að troða litblindubröndurum allstaðar að, og einhvern vegin tengjast þeir alltaf Þóri. I wonder why? Ég verð nú að gefa honum plús fyrir það að fatta að það var búið að mála húsið sem Astró er í þegar við vorum að rúnta um miðbæinn :) Svan Íslendingabók Var að skoða Íslendingabók áðan og fann þar frænda minn sem hefur augljóslega verið töffari: "Bóndi á Bakka og í Hrúthúsum í Fljótum, Skag. Var lengi skipstjóri. Var í Dæli í Fljótum, Skag. 1835. Bóndi á Dalabæ á Úlfsdölum, Eyj. 1889-1890. Húsmaður í Garði, Barðssókn, Skag. 1901. "Jón var mikill maður á velli og nokkuð stórskorinn í útliti, afarmenni að burðum og allri karlmennsku... Hann var ávallt kátur og glaður, brúkaði munntóbak, drakk brennivín og lifði lengi" segir í Skagf.1850-1890 IV." Gaman að grúska í þessu :) Svan Ný könnun Sökum afar áhugaverðra rökræðna sem ég átti við einn einstakling þá setti ég inn þessa könnun. Ég tel mig vita svarið við þessari spurningu, en ég vil helst fá þetta svona svart á hvítu. Svan:: fimmtudagur, maí 08, 2003 :: Heil vika Þá er ég kominn með heila viku og 31 mínútu betur af tónlist inn á tölvuna mína! Mér finnst ég samt ekki eiga neitt :) Svan Ég var næstum því... ...búinn að spyrja konu sem var ekki ófrísk hvenær hún átti von á að eiga. Vá hvað það hefði verið neyðarlegt, sérstaklega þar sem ég þekki hana ekki neitt þrátt f. að hún sé með mér í skóla. Svan:: miðvikudagur, maí 07, 2003 :: Siggi Pönk í Silfur Egils í kvöld Skv síðunni hans Sigga Pönk verður hann í Silfri Egils í kvöld að tjá sig um kosningarnar. Ég held ég góni á þennan þátt. Svan Rematch í Actionary Það var verið að minnast á það við mig að það væri rematch í actionary bráðlega, hvað segið þið (1, 2, 3, 4, 5) um það? Svan Eintóm gleði og hamingja! Mér tókst að koma netinu í lag heima! Yahoo! Svan Hvað er í tækinu The Stooges: The Stooges The Smiths: Vol-1 the best of the Smiths Sælgætisgerðin: Sælgætisgerðin O' brother, where art thou? Soundtrack Svan Já og Þórir... ...ég ætla að óska þér velgengni í prófinu í dag, þrátt fyrir að þú hafir gert lítið annað undanfarna daga en að gera grín af mér fyrir að falla í þekkingarstjórnun. Svan Ein vika eftir og síðan sumar"frí" Á mánudaginn og þriðjudaginn næsta er ég í málsvörn og viðveru uppfrá á Bifröst og svo er ég svo gott sem kominn í sumarfrí (þ.e. ef allt fer vel). Ég stefni á að eyða fríinu mínu í að vinna fullan vinnudag út sumarið þannig þetta er svo sem ekkert sérstakt "frí" út af fyrir sig. En gott að eiga pening :) Svan Mikið er nú gott að eiga frídag Ég er nánast ekki búinn að gera neitt í allan dag og vá hvað það er nice. Langar samt að gera eitthvað í kvöld, veit bara ekki hvað... Svan:: þriðjudagur, maí 06, 2003 :: Vinir mínir Þarf ég eitthvað að fara að endurskoða vinahópinn minn þegar næstum allir vinir mínir hlakka yfir því að ég hafi fallið í fagi? Svan:: mánudagur, maí 05, 2003 :: Ingibjörg Sólrún á málstofu Þetta á eftir að vera áhugaverð málstofa. Það voru nokkrir sem sömdu spurningar um ríkisframlög til skóla eftir ummæli hennar í HÍR saman til að bauna á hana þannig það á eftir að vera gaman. Svo á víst að dikta þetta. Svan Einhverntíman er allt fyrst... Ég féll í prófi í fyrsta skiptið á ævinni. Þetta er ekki eitthvað sem ég vil upplifa aftur :( En vá hvað ég nenni ekki að taka endurtektarpróf í þekkingarstjórnun! Svan Vá hvað ég sé þetta fyrir mér Svan :) Já og Dússý... ...farðu að blogga aftur! Svan Djammið á Bifröst Ég ákvað það í gær að fara á djammið en nennti ekki niðrí bæ. Það var víst feitt djamm uppfrá á Bifröst þannig ég ákvað bara að skella mér. Pælingin var sú að ég þyrfit 100% að taka leigubíl heim sem myndi kosta mig ca. 2000 kall (dýrt að búa í garðabænum) og bensín kostnaður + göngin þegar maður er með lykil eru undir því þannig why not að skella sér. Svo fattaði ég það í miðjum Hvalfjarðargöngunum að elskuleg litla systir mín hafði rænt helvítis lyklinum (með mínu leyfi ég var bara búinn að gleyma því :s) þannig ég þurfti að borga 1000 kall í göngin þannig að þá fór allur sparnaðurinn :) Anyways þá var mikið líf uppfrá, byrjaði á því að fara í partý til Bendts, Siggu og Berglindar þar sem rektor hélt uppi stuðinu. Síðan fór ég til Ingu og þaðan á kaffihúsið og var þar til þrjú. Vaknaði svo eiturhress daginn eftir og keyrði helþunnur heim til að prenta út misserisverkefnið. Guess what? Ég er kominn aftur uppeftir til að djamma! Einkunnaafhending og prófsýning á morgun og maður hefur ekkert betra að gera en að vera þunnur. Svan Áróður ættarinnar "ég mun taka það mjög nærri mér ef Dússý og Svan kjósa ekki sjálfstæðisflokkinn á laugardaginn" Skemmtilegur samviskubitsáróður hjá Ömmu minni :) Svan:: laugardagur, maí 03, 2003 :: Manni svona hálf hryllir við tilhugsunina... Svan Síðasti dagurinn Manni sýnist það svona á flestu að dagurinn í dag verði sá síðast í misserisverkefnisvinnunni. Þannig maður sér svona fyrir endan á þessu loksins. Er strax farinn að hlakka til sumarsins (og farinn að hlakka til að opna fyrsta bjórinn til að fagna sumrinu :) Svan:: föstudagur, maí 02, 2003 :: Homie að gera góða hluti á Sjallanum (linkurinn kominn í lag) Svan Misserisverkefnið í lokayfirlestri Eyddum deginum í dag að lesa yfir og leiðrétta misserisverkefnið okkar og sendum það í lokayfirlestur núna áðan. Þá er það bara að bíða og vona hvort þetta sé í lagi allt saman. Svan Ritskoðun Það er nú ekki oft sem það kemur fyrir að ég ritskoða mig, en í dag er einn af þeim dögum :) Svan:: fimmtudagur, maí 01, 2003 :: Það er nokkuð ljóst að ég er búinn að vera netlaus undanfarið... Ellefu færslur á einum sólarhring er náttla ekki eðlilegt. Svan :) Kosningarnar Jæja, hvað á ég að kjósa í vor? Ég hef verið að reyna að mynda mér skoðun á því heillengi en mér sýnast allir kostirnir vera álíka vondir einhvernvegin... Ég treysti ekki Samfylkingunni né Vinstri grænum. Stefna Framsóknar í landbúnaðarmálum er alveg off (eina ástæðan f. því að ég kýs þá ekki) og ég er of mikill rebel í mér til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Hinir flokkarnir eru meira upp á punt einhvernvegin. Ætli maður skili bara ekki auðu... Svan Bandaríkjamenn! Svona lagað getur bara gerst í bandaríkjunum! Hverjum öðrum dettur í hug að svipta foreldra forræði fyrir að taka myndir af barni á brjósti vegna þess að það er barnaklám. (link stolið frá Gústa sem stal honum frá Unni). Svan Hvað er í spilaranum Venjulega er þetta frekar langur listi hjá mér, en ekki í dag: The White Stripes: Elephant Þetta er bara endalaust góður diskur. Kannski er ég að ofmeta hann eitthvað en þessi diskur er alveg að gera það fyrir mig :) Svan Misserisvinnan Missó gengur alveg vonum framar, hef aldrei verið í hóp sem vinnur þetta vel. Sendum verkefnið í yfirlestur í gærkvöldi og fengum það til baka í dag með minni háttar leiðréttingum og sendum það í seinni yfirlestur líkast til annað kvöld. Ef við höldum vel á spöðunum þá sé ég fram á að allir nema ég og Hemmi geti verið í helgarfríi (við þurfum að sjá um að prenta þetta og klára að setja upp en við gerum það líkast til á laugardaginn). Við erum bara með alltof langt verkefni, komin með 1500 orð yfir leyfilegt hámark og eigum eitthvað eftir af niðurstöðunum og öll lokaorðin eftir. Skemmtilegt að vera í viðveruhóp hjá okkur :þ Svan Vitleysingur dagsins Vitleysingur dagsins verðlaunin hlýtur í dag leigubílstjórinn sem ákvað að hemla fyrst þegar ljósið varð að verða rautt, þannig að lögreglubíllinn sem var næsti bíll fyrir aftan þurfti nánast að nauðhemla til að lenda ekki aftan á honum, en ákvað svo að fara yfir á rauðu því að það var langt í að gamla konan sem var að fara yfir göngubrautina kæmi að hans parti af veginum. Að sjálfsögðu böstaði löggann hann. Er það ekki fjórir punktar og 20.000 kall í sekt? Svan Jæja, þá er sprautureikningurinn kominn upp í 13.000 kall! Vá hvað það er dýrt að láta bólusetja sig, shit! Fékk þrjár í gær og það kostaði mig tæpan 8.000 kall. Miðað við að ég sé tæknilega séð sýktur af lifrabólgu B, barnaveiki og japanskri heilabólgu þá líður mér alveg ágætlega :) En þessar sprautur eru að setja mig á kúpuna fjárhagslega séð! Svan Netleysið heima Það sem ég sakna langmest við það að vera netlaus heima er að komast ekki inn á MSN-ið! Argh! Svo að komast ekki í póstinn minn, komast ekki bloggsíðuhringinn minn, komast ekki á linkasíður og verða að hlusta á fréttir/lesa blöðin til að vera meðvitaður um hvað er að ske í kringum mig. Reyndar er ég laus við helvítis Pop-Up-ið og kemst í fleiri bækur til að lesa (smá pollýönnuleikur hjá mér :) Svan Myndirnar af Chloé Æj ég veit það ekki, mér finnst þessar myndir af Chloé ekkert vera neitt voðalega spes, bara alls ekki nógu flottar eitthvað. Að minnsta kosti ekki miðað við fuzzið sem þær ullu. Ekki það að ég vildi fá þær eitthvað grófari, myndirnar eru bara hálf hallærislegar eitthvað. Svo er það eitt, ef hún vill ekki að fólk sé að linka á þessar myndir þá á hún ekki að vera að sitja fyrir nakin vitandi að þetta fari í vefsíðu, ég skil ekki hvað málið er eiginlega. Ég get ekki ímyndað mér að það sé eitthvað mikill peningur í þessu og miðað við hvað Ísland er lítið samfélag þá er 100% að þetta dreifist út um allt (eins og það gerði). Það var alveg fyrirséð og þetta átti hún að vita. Að sjálfsögðu kipptu vefir eins og Batman.is og Tilveran.is (og nú síðast Katrín.is)linkunum af þegar hún þá um það en skaðinn var að sjálfsögðu skeður. Spáðiði samt í dæminu að vera svona þekkt númer í djammlífinu hér á Íslandi eins og hún er og allir, hver einn og einasti sem maður hittir á djamminu, veit hvernig þú lítur út nakinn. Hversu mikið borgað myndi maður vilja fá fyrir það??? Svan:: miðvikudagur, apríl 30, 2003 :: Netfíkn Ég er búinn að vera netlaus heima hjá mér núna í tæpa viku og ég er að átta mig betur á því dag frá degi hversu ótrúlega háður ég er internetinu... Ég er búinn að vera að troða mér inn á vini mína og ættingja til þess að getað tékkað á póstinum og bloggað og þess háttar (er núna heima hjá afa og ömmu) og finnst mér þetta frekar sorglegt. Svo er líka erfitt að sitja heima og horfa á tölvuna vitandi það að netið liggur niðri. Ég er að velta fyrir mér að leita mér hjálpar :) Svan Svolítið stór fullyrðing, en... ...ég sé ekki fram á að nokkur hljómsveit geti toppað Elephant með White Stripes á þessu ári. Það verður einstaklega erfitt að toppa hann sem besta disk ársins á mínum lista. Svan Undarlega fólk Vorið(/sumarið) dregur fram undarlega fólkið, það er nokkuð ljóst... Svan:: laugardagur, apríl 26, 2003 :: Netsambandsleysi og sumarbústaðarferð Af einhverju ástæðum hætti routerinn heima að taka við rafmagni og því er ég netsambandslaus heima og verð það ábyggilega eitthvað næstu daga þannig að uppfærslur verða ekkert sérstaklega reglulegar á næstu dögum :( Svo er ég líka að fara í sumarbústaðarferð núna á sunnudaginn til þriðjudags að vinna að misserisverkefninu þannig ég mun ekkert getað uppfært þá heldur :( Sem sagt, mikið um að vera á blogginu mínu næstu daga. Svan White Stripes Fór niðrí bæ í dag til að kaupa mér "Elephant" með White Stripes. Byrjaði á því að fara í Japis en þar var hann uppseldur og sagði afgreiðslumaðurinn að hann hefði selt rúmlega tíu eftir hádegi í dag, sem er svona nett surprising því hann kom út fyrir svolitlu síðan. Rölti yfir í skífuna og þar sá ég strák labba með þennan disk út úr búðinni og þegar ég ætlaði að fara að borga þá var gaurinn á undan mér að kaupa hann líka sem og gaurinn fyrir aftan mig og maðurinn á næsta kassa líka. Ég hugsaði bara wtf, hvaða helvítis, af hverju eru allir að kaupa hann í dag??? Skoðaði svo fókus áðan og þar var verið að líkja þessum disk við OK computer þessarar kynslóðar... kannski svolítið skiljanlegt þetta kaupæði... Diskurinn er btw algjör snilld. Svan:: föstudagur, apríl 25, 2003 :: Gleðilegt sumar ...ekki það að það hafi verið einhver vetur í ár :þ Svan:: fimmtudagur, apríl 24, 2003 :: Tilvitnunin Viska frá Þóri Strump. "Flestum lögfræðingum finnast mannréttindi vera frekar leiðinleg" Skemmtilegt viðhorf... Svan Ta24ever Anton vélritunarkennari sendi mér sms um daginn með þessum texta: "Velkominn í aðdáendaklúbb TaTu. Ta24ever!" Að sjálfsögðu var þessi skráning í þennan aðdáendaklúbb ekki að mínu frumkvæði. Ef ég fer að fá einhverja meila senda út af þessu þá fyrst verð ég reiður! Svan Skærgrænir skór Mamma spurði mig hvað mig langaði í í sumargjöf, og ég bað um skó. Elsku litla systir mín valdi handa mér skærgræna skó. Ég veit ekki alveg hvort ég eigi að skila þeim eða að nota þá, ég held nefnilega að ég sé ekki alveg þessi skærgræna týpa :) Samt gaman að prófa. Svan Missó á fullu Þriðji dagur í missó á morgun. Þetta er búið að ganga alveg ágætlega við erum komin vel á veg og skýrt hvað liggur fyrir. Hópurinn ákvað svo í dag að fara í sumarbústaðinn hans Péturs M. frá sunnudegi til þriðjudags til að gera meginhluta verkefnisins, það er sjálfa kynningaráætlunina. Lýst mér ágætlega á þetta plan því það eru ár og dagar síðan ég fékk mér bjór í heitum potti (sem er eitthvað sem ég er orðinn háður eftir 2 ár á Bifröst :) Svan Dúndurfréttir Þetta voru alveg magnaðir tónleikar áðan. Það vantaði reyndar "Comfortably Numb" en það er svo sem allt í lagi því þeir tóku uppáhaldslagið mitt, "Mother", og svo var seinni parturinn alveg geðveikur. Veit einhver hvað sóló gítarleikarinn í Dúndurfréttum heitir? Einar eitthvað held ég. Annars fínt kvöld í mjög góðum félagsskap. Svan:: miðvikudagur, apríl 23, 2003 :: Frí Eftir góða veðrið í gær þá líður mér eins og ég sé kominn í sumarfrí. Þett' er bara ekki hægt, nýbyrjaður í misserisvinnunni og er strax farinn að hlakka til lok málsvarnar :) Svan Ghostwriter Það eru ár og dagar síðan ég hef verið jafn "ástfanginn" af einu lagi. Þetta lag heitir "Ghostwriter" með plötusnúð sem kallar sig RJD2, hvet sem flesta til að tékka á því. Svan HABL Þessi helvítis lungnabólga sem er að gera allt brjálað úti í Kína er ekki alveg að skora neitt voða mörg stig hjá mér. Ég veit ekki alveg hvort ég fari út í skiptinámið ef ekki verður búið að hefta útbreiðslu hennar, því ég þori eiginlega ekki að taka áhættuna. Maður vill eiginlega ekki vera að færa sig eitthvað nær þessu ef maður kemst hjá því. Reyndar hef ég heyrt að það séu lítið af ungu fullfrísku fólki að smitast af þessu, en samt. Bara að vona það besta. Svan X-2 Fór á Nexus forsýningu á X-men 2 áðan og var myndin alveg stórfín. Ekkert hlé og enginn texti sem er bara af hinu góða. Það myndast líka alltaf svo skemmtileg stemming í salnum, klappað og gólað á viðeigandi pörtum og svona. Sátum fyrir framan þvílíka comic book nörda sem ætluðu augljóslega að eyða allri myndinni í að keppast um hverjir vissu mest um hvern karakter, þangað til að þeim var sagt að steinhalda kjafti af fólki sem var nálægt þeim. Mystique er langsamlega flottasti karakterinn í myndinni (báðum myndunum eiginlega). Svan:: þriðjudagur, apríl 22, 2003 :: Dúndurfréttir Dúndurfréttir ætlar að flytja Dark Side of the Moon í Borgarleikhúsinu síðasta vetrardag. Ætlar Svan að fara á þessa tónleika? Já veistu ég held það bara. Svan:: mánudagur, apríl 21, 2003 :: Gleðilega páska! Svan Frænkur Frænka 1: Mér finnst þú hafa breyst rosalega mikið Svan minn eftir að þú fórst að læra þarna í bændaskólanum (gömul) Frænka 2: Hann er ekkert í bændaskólanum, hann er þarna í framsóknarbælinu í Borgarfirðinum, þanna Bifröst er það ekki? Ég: Jú, ég er að læra í Viðskiptaháskólanum á Bifröst (gömul) Frænka 2: Já, heitir hann það núna? Er þetta ekki bara allt sama tóbakið, þú ætlar að verða kaupfélagsstjóri þegar þú ert orðinn stór eins og allir sem koma frá Bifröst er það ekki? Ég: ummm.... Skemmtilegt viðhorf sem fólk hefur til Bifrastar. Svan:: sunnudagur, apríl 20, 2003 :: mmmmmmmmm chocolate Vá hvað er gott að háma í sig súkkulaði á páskadagsmorgun og drekka ískalda mjólk með. Litla systir mín átta ára fékk þá grillu í hausinn að það ætti að fela páskaeggin (sem hefur aldrei verið gert hérna heima). Ég bannaði henni að fela mitt og henti því inn í ísskáp. En nei, hún tók það úr ísskápnum og faldi það á alveg heví góðum stað þannig ég eyddi miklum hluta morgunsins að leita af því. Heimskulegu amerísku hefðir. Samt... mmmmmmm chocolate. Svo er líka kalkúnn í kvöld :) Svan Hvað er í tækinu Yo La Tengo: Summer Sun Talking Heads: Stop Making Sense tónleika DVD Dave Matthews Band: The Videos 1994-2001 (DVD) Clinic: Internal Wrangler Bob Dylan: Blonde on Blonde og The Freewheelin' Bob Dylan Miðað við review-in á Amazon á Yo La Tengo disknum þá er hann ekkert spes miðað við aðra diska með þeim. Ég er samt að fíla þennan disk frekar vel þannig ég sér fram á að kynna mér eldra stöff með þeim. Svo hef ég verið að leita af þessum Stop Making Sense tónleika DVD disk með Talking Heads síðan einhvern tíman í fyrra og fann það loksins í tónlistarmarkaðnum í Perlunni (sem er btw alveg rándýr). Mikil snilld. Svan Blogg leti & Missó Mikið verður maður alltaf latur við að blogga þegar maður er í fríi :( Ég er annars búinn að vera bara frekar upptekinn við að gera ekki neitt og sofa. Er svo að fara að vinna að misserisverkefninu okkar á mánudaginn (eða þriðjudaginn, ég bara veit það ekki :$). Verkefnið okkar er kynningaráætlun fyrir Svansprent, sem er í eigu fjölskyldu minnar. Það er alveg mest þægilegt að ég get fengið "viðtalstíma" hvenær sem er og þarf ekki að panta neitt sérstaklega fyrirfram og gera það á skrifstofutíma eins og ef við værum að vinna með einhverju fyrirtæki sem við þekktum ekki nægjanlega vel til (er til dæmis að fara að taka "viðtal" við afa minn núna eftir kvöldmat á laugardegi). Ég sé ekki fram á að við lendum í einhverju veseni með að fá nauðsynlegar upplýsingar í þessu verkefni :) Svan:: laugardagur, apríl 19, 2003 :: Stærðfræðilegafatlað afgreiðslufólk Fór í sömu sjoppu og mér var næstum hent út af fyrir að vera barnaníðingur í fyrra til að kaupa bland í poka fyrir félagana, sem eru btw með endalausar sérkröfur. Ég átti að kaupa handa þeim tvo bland í poka annan bara með gúmmíi og hinn með öllu nema gúmmíi (í tilefni af lesendabréfinu í sunnudagsmogganum síðasta um "gúm og skúm" (drepfyndin lesing btw)) og áttu báðir pokarnir að vera fyrir 300 kall. Afgreiðsludaman kemur til baka með tvo poka, réttir mér þá og segir: "Þetta verða 900 krónur". Hún hefur augljóslega ekki lært stærðfræði á sama stað og við hin. Ástæðan fyrir þessari hækkun? Stórhátíðarálag. Hvers vegna gerði hún ekki ráð fyrir því þegar hún setti í pokana??? Eftir að hafa rökrætt þetta aðeins við hana þá endaði ég á því að borga 600 kall :) Svan:: föstudagur, apríl 18, 2003 :: Dússý systir geðveikt sár Við vorum að surfa netið systkynin og fundum þessa síðu. Á þessari síðu var mynd af þessum fallega labrador hundi sem heitir einmitt Dússý. Vá hvað Dússý sys var ekki sátt :þ Svan Baggalútur Ég er að uppgvöta snilldarsíðuna Baggalút fyrst almennilega núna. Þar sem hún er komin í vefsíðuhringinn minnn þá bæti ég henni í linkalistann minn. Svan:: fimmtudagur, apríl 17, 2003 :: Miðvikudagsdjammið Hvað er málið með það að það sé orðið bjart úti þegar ég kem heim af djamminu á miðvikudegi! Þetta er skýrt merki um að maður þarf að fara að róa sig niður aðeins :) Svan Hmmm... Segir það eitthvað um tónlistarsmekk minn að ég eigi í meiriháttar erfiðleikum með að fylla heilan skrifaðan disk með tónlist úr tölvunni minni sem hægt er að spila í partýum því ég finn einfaldlega ekki nógu mikið af partýlögum? Ég veit ég hlusta á "þunglynda" tónlist, en ég meina common ég er með yfir 2000 lög í tölvunni minni (allt af diskum sem ég á) og ég get ekki sett 20 stykki á disk sem á að spila í partýi í kvöld því mig vantar partýlög... Svan Djammið Það er verið að draga mig á djammið í kvöld, varla segir maður nei við því :) Svan:: miðvikudagur, apríl 16, 2003 :: Rispaðir diskar Djöfull þoli ég það ekki að það að geisladiskar skuli alltaf(!) rispast á þeim stað þar sem uppáhaldslagið þitt er. Ég er núna að hlusta á tvo Nick Cave diska, The Boatman's Call og Murder Ballads. Á Murder Ballads eru "Where the wild roses grow" það rispaðasta í heimi og á Boatman's Call eru bæði "Into my arms" og "The one I've been waiting for" gersamlega ónýt. ...og ég er ekki búinn að taka backup af þessum diskum á tölvuna mína :( Svan:: þriðjudagur, apríl 15, 2003 :: Páskaeggjagjöf Í dag erum við systkynin að fara að dreifa páskaeggjum meðal helstu viðskitpavina Svansprents. Mér finnst alltaf svo gaman að gefa eitthvað svona, fólk verður alltaf svo þakklátt og happy eitthvað. Er svo að fara að vinna að misserisverkefninu okkar seinnipartinn í dag, ætlum að reyna að vera með tilbúinn spurningarlista fyrir morgundaginn til að greina samkeppnisaðilana á prentmarkaðnum. Það er að minnsta kosti planið en spurning er hversu langt við komumst með það... Svan:: mánudagur, apríl 14, 2003 :: Japansferðin Á föstudaginn skrifaði ég undir formlega umsókn til að fara í skiptinámið í Japan. Umsóknirnar komu á föstudegi og við þurftum að skil þeim inn á sama degi. Skemmtilegt hvað maður fékk mikinn tíma :) En þá er það eiginlega alveg ákveðið, ég er að fara út núna í september og kem ekki heim fyrr en ágúst 2004. Þetta er bara svo djöfulli langur tími. Mér er samt búið að dreyma tvisvar fyrir því að ég hætti við ferðina og í bæði skiptin út af því að mér stendur eitthvað betra til boða eða það sé eitthvað heima sem mig langar frekar til að gera/vera hjá. Ég er samt alveg 100% á því að ég ætla út. Svo er þetta líka ágætis career move því bæði er það mjög gott á CV-inu að hafa lært úti í Japan sem og að ég er að spara mér 40-45.000 kall í útgjöld á mánuði :) Svan Helgin Fínasta helgi, djammað báða dagana og bærinn fínn. Fór í vísindaferð í VÍS í gær og þar var ótrúlega vel veitt af bæði mat og drykk, því þau miðuðu við 40 manns en það mættu tæplega 20. Þrátt fyrir að það hafi verið svona fáir þá var stemmingin mjög fín og fær VÍS hæstu einkunn fyrir vel heppnaða vísindaferð. Ég nenni eiginlega ekki að segja frá alveg öllu sem skeði um helgina, en það var heilmargt merkilegt. Hins vegar þá drógu foreldrar mínir mig í fermingaveislu í dag og var ég þar frekar þunnur og raddlaus. Næstum allir ættingjar mínir spurðu mig hvort ég væri timbraður og Maddi föðurbróðir vildi fá að vita hvaða wiský tegund ég drykki því sama hvað hann reyndi þá næði hann ekki jafn mikilli wiskýrödd og ég var með. Ekki alveg beint viðeigandi í fermingarveislu. Svan:: laugardagur, apríl 12, 2003 :: Tilvitnunin Heyrði þetta fyrir einhverju síðan, mundi eftir þessu áðan. "...já ég ætla að fá hjá þér einn sítrónutopp, hálfan líter af kók og svo einn eplaskertan sykursvala" Svan Búinn í prófum!!! Snilldin ein. Ég er búinn að klára prófin og er komin í páskafrí. Svo verður djammað feitt bæði í kvöld og annað kvöld. Fór í klippingu áðan til Ingó félaga míns, var búinn að drekka 5 bjóra fyrir það og var með aðra 7 í poka inn á hárgreiðslustofuna og fólk horfði á mig eins og ég væri stórskrítinn (klukkan var ekki nema um 5). Svan:: föstudagur, apríl 11, 2003 :: Ný könnun komin inn Henti inn nýrri könnun. Hin sýndi fram á að fólk vildi frekar fá nýjan glugga í linkunum heldur en ekki. Svan MSN Radio part 2 Ég er alveg að sjá að ég muni koma til með að eiga heima á MSN Radio. Spurning um að setja það sem upphafssíðu. Þeir eru meira að segja með "O brother where art thou" stöð! Það eina sem ég er hræddur við er ef að playlistarnir eru stuttir. Svan MSN radio Jói var að benda mér á snilldar dót á netinu, tónlistina sem MSN er að bjóða uppá hjá MSN entertainment. Þá er það bara að komast að því hvort þetta virki á Apple tölvur því þá get ég haft þetta á í vinnunni í sumar. Ég er búinn að vera að hlusta á þetta eitthvað núna, og ég hef aldrei heyrt leiðinlegt lag á alternative stöðinni (sem spilar reyndar ekkert voðalega alternative lög). Þetta er eitthvað sem ég sé fram á að nota mikið, sérstaklega þar sem þetta er frítt (eins og allur góður hugbúnaður). Ég meina, fyrsta lagið var "Message in a bottle" með "Police", næsta lag var "Drive" með "Incubus", næsta lag var "Optimistic" með "Radiohead", what's not to like??? Svan Ótrúlega getur fólk verið fyndið Seinni partinn í dag er ér búinn að vera með msn nick-ið "JTHM - ekki trufla mig nema það sé über merkilegt". Ég hef aldrei á ævinni verið truflaður jafn oft út af nákvæmlega engu. Vinir mínir eru svo miklir húmoristar að það er alveg æðislegt. ps. áður en að einhver stingur upp á því við mig, þá geri ég mér fulla grein fyrir því að ég get sign-að mig út af msn-inu ef ég er svona upptekinn :) Svan Síðasta prófið á morgun Jæja, þá er síðasta prófið á þessari önn á morgun og svo bara páskafrí. Hversu ljúft er það.... Svan:: fimmtudagur, apríl 10, 2003 :: Könnun Ég bætti við könnun á síðuna mína. Það fylgir henni einhver helvítis auglýsing sem ég losna held ég ekkert við og svo er ég reyndar í smá basli með að fá rétta liti á hana, en það hlýtur að koma á endanum... Svan Nýja myndaalbúm Árna Hamsturs Mér finnst þetta myndaalbúm frá Árna Hamstri vera alveg ógeðslega kúl. Annars þá á hann helling af flottum myndum sem má skoða hérna. Svan Yfirlýsingar skólafélags Bifrastar Formaður skólafélags viðskiptaháskólans á Bifröst lýsti því yfir við hátíðlega athöfn yfir hamborgara á kaffihúsinu í hádeginu í dag að ég væri kominn á lista yfir "öxulveldi hinZ illa". Þar sem ég formlega orðinn að einu af illu öflunum innan skólans, er þá ekki spurning um að koma með ekta niðurrifsstarfsemi? Ef þið eruð með einhverjar hugmyndir endilega látið heyra í ykkur... Svan Stefnumótunar prófið part 3 Mér gekk svo mikið betur en ég bjóst við að ég býst ekki við að opna bók í alþjóðahagmálum í dag, svona til að halda upp á þetta. Miðað við hvað mér fannst ég læra lítið þá á ég þetta ekki skilið :o) Svan Munnlegt próf í stefnumótun part 2 Ég hef nákvæmlega aldrei verið jafn óöruggur fyrir nokkur próf á ævinni. Það byrjar eftir 10 mínútur... Svan:: miðvikudagur, apríl 09, 2003 :: Munnlegt próf í stefnumótun' Vá hvað ég hata munnleg próf. Skriflegu prófin hérna í skólanum eru þannig að maður má hafa öll gögn sem maður vill með sér (ctrl-F er besti vinur barnanna) sem að þýðir það að maður þarf ekki að vera með allt á 100% hreinu því maður getur alltaf flett því upp ef maður er nægilega skipulagður. Hins vegar þá eru prófin þannig byggð upp (a.m.k. flest) að maður getur ekki nýtt sér gögnin nema að litlu leyti, því maður þarf að hafa að minnsta kosti grunndvallarþekkingu á námsefninu til að getað staðist þau (btw er 6 lágmarkseinkunn til að ná prófi). Munnleg próf hins vegar þá þarf maður að vita allt. Maður veit aldrei hvaða spurningu maður dregur sem er líka alveg heví ósanngjarnt því það er nánast hægt að falla ef maður dregur eitthvað sem maður er ekki nógu vel að sér í. Ég fór til dæmis frekar illa út úr síðasta munnlega prófi vegna þess að ég dró spurningu sem ég vissi hreinlega ekkert um. Svo finnst mér ég ekki kunna neitt fyrir þetta próf sem er líka alveg mest óþægilegt. Það byrjar eftir fjóran og hálfan tíma, skildi maður ná að undirbúa sig almennilega fyrir þann tíma...? Svan:: þriðjudagur, apríl 08, 2003 :: Skekkja Skemmtileg þessi skekkja í heimsóknarfjölda sem einn linkur á www.batman.is getur valdið. Svan Fólk að stíga í vitið í Garðabænum "Hey, förum að sniffa gas inn í bílskúr og á meðan þá skalt þú fara og kveikja þér í sígarettu fyrir utan. Nei bíddu aðeins með að kveikja þér í rettunni, leyfum gasinu aðeins að ná að fylla allan bílskúrinn þannig það kvikni örugglega í öllu andrúmsloftinu þarna inni þannig við vekjum örugglega alla í hverfinu..." Ég get vel ímyndað mér að þessar samræður hafi átt sér stað þegar þessi sprenging varð í íbúðarhúsi í Garðabænum í nótt. Ég var að heyra að þessi sem var úti hafi verið í "smókpásu" rétt hjá útidyrahurðinni á meðan tvö gasgrill voru á fullu inn í bílskúrnum. Spurning um að senda þetta til www.darwinawards.com? Ég held að þetta kæmi sterkt inn þar (á þessari síðu eru veitt verðlaun fyrir heimskulegustu slysin). (félagi minn sem vaknaði við þessa sprengju heitir á msn-inu núna: "Nágranni minn sniffar gas og reykir á sama tíma DÖH!!!") Svan Hvað er í tækinu Dave Matthews Band: Live at Folsom Field Radiohead: nýja stöffið Belle and Sebastian: The Boy With the Arab Strap Richard O' Brien: Rocky Horror Picture Show soundtrack Svo hef ég verið að hlusta á eitt lag með hljómsveit sem heitir giZmo. Lagið heitir Passes By og held ég að vinur minn hann Andri Þór hafi samið textann við þetta lag. Snilldar lag, ef þú vilt ná í það eltu þennan link. Svan:: sunnudagur, apríl 06, 2003 :: Versta pick up lína í heimi Stelpa sem ég þekki lenti í því að þessi pick up lína var notuð á hana á einhverju djamminu: "Mikið ertu með falleg augu. Má ég eiga þau þegar þú ert dáin?" Ég er ekki viss um hvort þetta sé pick up lína eða morðhótun... Svan:: föstudagur, apríl 04, 2003 :: Nýr bloggari á leslistann minn Mér var bent á síðuna www.bara.is fyrir nokkru og hef ég verið að lesa bloggið þar alveg síðan. Fínasta lesning. Svan Reading Festival vs. Hróárskelda Ég er eiginlega búinn að ákveða að fara á einhverja tónlistarhátíð í sumar. Ég hef verið á leiðinni á Hróárskeldu hvert einasta sumar síðan ég var 17 ára gamall en aldrei fundið neinn til að fara með mér. Ég ætla mér að finna einhverja sem ég get dregið með mér í ár ef ekki þá treð ég mér bara með einhverjum íslenska hópnum sem er að fara. Ég á eiginlega bara eftir að ákveða hvert ég ætla en valið stendur aðallega á milli Hróárskeldu og Reading, og enn sem komið er þá heillar Reading mig betur. Þá er það bara að byrja að safna... Svan:: fimmtudagur, apríl 03, 2003 :: Andleysi Mér líður eins og prófin séu ekki byrjuð. Ég á heví erfitt með að koma mér að verki og finn alltaf eitthvað betra til að gera heldur en að læra. Ég meina let's face it það er nánast allt skemmtilegra en að liggja yfir námsbókunum. Maður verður samt að sparka í rassinn á sér og fara að gera eitthvað. Svan Ég ætla ekki einu sinni að svara þessu :o) Svan Scooter Ég mun skammast mín fyrir að vera Íslendingur ef það verður uppselt á Scooter tónleikana. Hver vill eiginlega fara á þessa tónleika??? Ef það verður bar á staðnum þá mæli ég með því að ef þeir vilji reka barinn með hagnaði, að þeir selji vatn líka því e-pillurnar á svæðinu verða álíka margar eins og gestirnir. Systir mín var að plotta að fara og lykla allar Hondurnar sem verða fyrir utan höllina þetta kvöld, en ég held að hún sé ekki svona vond í sér... Svan Piercing Það sköpuðust áhugaverðar umræður á kaffihúsinu í gær um fólk sem setur pinna, hringi og slíkt í andlitið á sér. Meirihluti þeirra sem tóku þátt í umræðunni fannst þetta vera alveg off, og einn "vildi ekki umgangast fólk sem væri að gera sig að fífli á þennan hátt". Minnihlutinn (ég og Bárður) fannst þetta vera hins vegar bara allt í lagi og í flestum tilfellum bara frekar töff. Einhverntíman í miðri umræðunni þá sagðist ég hafa spáð í því nokkrum sinnum á alvarlegan máta að prófa að gera svona einhvern tíman, en þá gripu margir andköf og svo var mér hótað líkamlegu ofbeldi (bara í djóki reyndar :þ ) ef ég myndi gera þetta en fólk varð virkilega alvarlegt þegar ég sagði þetta. Fólk sem skreytti sig með svona löguðu væri víst litið hornauga af "venjulega" fólkinu og margir ættu erfiðara með að treysta því heldur en öðrum, áliti það jafnvel glæpamenn við fyrstu sýn. Ég held bara að með þessu sé tilganginum náð. Það að þetta skuli skapa svona sterk viðbrögð hjá sumum er einmitt ástæðan fyrir því að margir gera svona. Margir hverjir telja sig vera yfir það hafnir að umgangast fólk sem "gerir svona", ég held það barasta að þeir sem eru svona skreyttir vilji sáralítið umgangast fólk sem er með svona hleypidóma. Mér finnst það vera hálfsorglegt að fólk skuli vera með þetta viðhorf, en ég býst ekki við að þetta sé eitthvað að fara að breytast í bráð. Svan Fyrsta prófið búið Jæja, þá er fyrsta prófinu lokið. Þetta gekk bara svona temmilega, reyndar lenti ég í því að íslensku stafirnir duttu út í Word þannig ég þurfti að klára prófið í Notepad þannig ég lenti í smá tímaþröng því ég þurfti alltaf að cópera textann fram og til baka ef ég ætlaði mér að leiðrétta eitthvað sem var svona frekar pirrandi. Annars þá ætlaði ég að vera alveg heví duglegur að læra áðan og plantaði mér inn í aðalsalinn, en lenti þar bara á einhverju tjatti á msn-inu og endaði svo á því að fara heim og leggja mig í næstum þrjá tíma. Mikill dugnaður á þessum bæ. Svan:: miðvikudagur, apríl 02, 2003 :: Aprílhlaupið mitt Ég hljóp ekki apríl í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir félaga minna. Bendt bauð öllum skólanum í afmælið sitt í Kringluna þar sem átti að bjóða upp á kökur og létu margir sjá sig :). Þórir reyndi að telja mér trú um að flytja ætti bein J.R.R. Tolkiens til Íslands, sem er btw frekar lame aprílgabb því ég þyrfti ekki að hlaupa yfir neinn þröskuld. Unnari Steini tókst að láta helling af lögfræðinemum leita út um allt share-aða tölvu svæðið af svörunum úr prófinu sem þau voru í um morguninn. Síðan var eitt stykki herbergishurð fjarlægð og klósetthurð sem fyllti ekki út í dyrina sett í staðinn í dag á vistinni, það uppátæki skoraði ekki mörg stig hjá Rektor hef ég heyrt. Ég hljóp hins vegar apríl það hrottalega fyrir einhverjum þremur-fjórum árum síðan að það mun reynast erfitt að gabba mig aftur á þessum degi í bráð. Við vorum tveir að vinna upp á bókbandi í Svansprent í páskafríinu, þegar eiginkona þessa vinnufélaga míns hringdi í hann og bað hann um að fara niðrí Toyota umboð til að sækja barnabílstól sem var í bílnum þeirra sem var í viðgerð (þetta var rétt fyrir lokun þannig það þyrfti að gerast fljótt). Þar sem við vorum bara tveir og hann var að vinna við einhverja flókna vél (a.m.k. fyrir mig) þá sendir hann mig til að redda þessu fyrir sig (hann hafði ekki hugmynd sjálfur að þetta væri aprílgabb). Ég fer niðrí Toyota umboð í grenjandi rigningu (labbandi, það er svo stutt á milli) og fer beint á afgreiðsluna til að komast að því hvar í viðgerðarferlinu viðkomandi bíll er. Þar var mér sagt að það væri að rétta hann þannig ég tölti upp í réttingarverkstæði. Þar er tekið á móti mér og bíllinn fundinn, en þar enginn barnabílstóll. Ég spurði þá hvort þeir hefðu virkilega tekið stólinn úr bílnum (ég var alveg gjörsamlega grænn) og starfsmaðurinn kallar á verkstæðisstjórann og spyr hann hvort hann viti nokkuð til þess hvort fjarlægður hafi verið barnabílstóll út úr bílnum. Verkstæðisstjórinn fattaði augljóslega hvað var að gerast og ákvað að taka þátt í leiknum því hann spurði mig hvort stóllinn væri grænn með svona rauðum röndum sitthvoru megin við hann, en ég hafði ekki hugmynd um það og sagði honum það. Hann kallaði á vinnufélaga sinn og spurði hvort hann hefði tekið stólinn sem hafði legið á gólfinu hérna áðan. Þessi félagi hans tók þátt í þessu og sagðist hafa sett hann í rauða corollu fyrir misskilning því stóllin hafði legið við hliðna á henni. Þessa Corollu hafði hann síðan keyrt út á bílaplanið þar sem notaðir bílar til sölu væru fyrir stuttu síðan. Ég spurði þá af hverju í andskotanum þeir hefðu tekið stólinn úr bílnum, og þá sögðust þeir hafa þurft að taka allt úr aftursætinu út af því að þeir höfðu eitthvað þurft að athafna sig þar, og ég keypti þessa skýringu alveg. Þeir fóru í einhverja tölvu og flettu upp bílnúmerinu og sendu mig síðan út að leita af rauðri corollu með barnastól í. Að sjálfsögðu fann ég ekki þennan béskotans bíl eftir að hafa leitað í ríflega klukkutíma í helli rigningu, og kom upp í vinnu einhverjum tæpum tveimur tímum seinna og sagði vinnufélaga mínum frá þessu. Þá fyrst föttuðum við að það væri fyrst apríl. Svan Ábyggilega erfitt að koma þessu lagi frá sér rétt í karíokee-i (link stolið frá Sportkotlingum). Svan Dave Matthews band Ég hef verið að hlusta á DMB undanfarið og var ekki alveg verið að fatta hvar snilldin sem allir sem ég hef heyrt tala um bandið voru að tala um lægi, þangað til allt í einu í dag. Ég fattaði það bara allt í einu í rólegheitunum í sófanum í Kringlunni (sem er setustofan hér á Bifröst) að þetta væri einhver sú mesta snilld sem ég hef hlustað á í langan tíma. Diskurinn sem ég hef mest verið að hlusta á er live diskur sem heitir "Live at Folsom Field". Ég er að fara að redda mér fleiri diskum með þeim, það er nokkuð ljóst. Svan
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||